Gellu-iðjurnar

12.06.2009 12:31:59 / Kristjana

Jönu - hittingur :o)

Sælar gellz

Hvernig er stemmingin fyrir hittingi hjá mér á þriðjudag eða fimmtudag í næstu viku ?
Það hefur eflaust verið margt í gangi hjá ykkur síðan síðast og alveg komin tími til að slúðra :o)

Látið í ykkur heyra með þessa daga og við sjáum svo til hvað verður..

Kveðja
Janan

» 0 hafa sagt sína skoðun

31.05.2009 16:21:54 / Helga

takk fyrir okkur

takk fyrir okkur stelpur


» 0 hafa sagt sína skoðun

28.04.2009 18:57:44 / Stína

Giðju/afmælis hittingur

Nú er komið að hitting hittinganna heima hjá henni Stínu sem er að fríka út. Hún hefur tekið upp gælunafnið Kugga og gengur helst ekki í neinu öðru en pollagalla núorðið :) Mig langar að bjóða ykkur elskulingunum í svítunu mína í gidju/afmælis hitting. Hvað segið þið um hitting í næstu viku. Ég sting upp á þriðjudagskvöldi. Annars ganga allir dagar hjá mér nema miðvikudagar þar sem við Jana göngum fram af okkur :)  

Kristín, Rut, Bjögga, Krulla, Eva og Erna og allar giðjur norðan og sunnan ef þið erum einhversstaðar nærri ... þá endilega látið í ykkur heyra og mætið sprækar :)

knúsbomba,

Kugga (áður Stína)


» 13 hafa sagt sína skoðun

02.03.2009 17:45:26 / Hjödda

"Janúar" hittingurinn...

Jæja skvísur (þið ykkar sem enn kíkkið hér inn það er ;) hehe)

Þá er komið að hinum eina sanna janúar hittingi sem ég lofaði hér um jólahátíðarnar ;) djöfull flýgur tíminn ha...huhumm... ;)

Hlakka til að sjá ykkur sem flestar hér í hreiðrinu á Bústaðavegi 53, jarðhæð.
Mæting 20:30 fimmtudaginn 5. mars...

Bí ðer or bí skver ;)

Hjödds


» 2 hafa sagt sína skoðun

19.02.2009 23:27:12 / Helga Þyri

HELLO...Hello...hello...

Is There Anybody Out There?


8|     8|     8|     8|     8|      8|


» 5 hafa sagt sína skoðun

26.12.2008 00:19:42 / Hjödda

Gleðilega hátíð!!! :)

Gleðilega hátíð elsku dúllurnar mínar!! :)
Búið að vera hreint ótrúlegt ár hjá okkur ha?! :)
Ég vona að þið hafið það sem allra best um hátíðarnar og hlakkar mér mikið til að hitta ykkur hressar og sprækar á nýju ári 2009!! :)
Æ lof jú gæs!! :)
Hjödda

p.s. sunnangiðjur: hvað segið þið um hitting hjá mér bara strax í janúar? :)



» 5 hafa sagt sína skoðun

04.12.2008 16:15:53 / Krulla

idjuthjalfun.is

Var að setja inn tengil á síðuna okkar hérna á 4. árinu... endilega kíkiði á síðuna og látið berast að við séum búin að opna... stefnan er svo að halda áfram að bæta inná hana og gera og græja fram á vor. Síðan verður svo okkar framlag þetta árið og engin iðjuþjálfaneminn gefin út :)

Krullan ykkar

» 1 hafa sagt sína skoðun

25.11.2008 08:38:10 / Steina

Kittý á afmæli í dag

Elsku Kittý til hamingju með 27 ára afmælið. Hafðu það sem allra best í dag sem og aðra daga. Ég veit að hann Bjarni þinn dekrar við þig ;). Ég sakna ykkar ROSALEGA mikið.

Þúsund kossar og knús í klessu
Kv. Steina eyjarskeggi

» 9 hafa sagt sína skoðun

06.11.2008 14:16:47 / Helga Þyri

Jólaferð ??

Er enn verið að spá í jólahitting norðan heiða eða er komin kreppa í dæmið?:s
Ég vona allavega að þetta standi enn til. Það væri gaman að fá einhver komment á þetta bara svo maður sjái hvort einhver möguleiki er á að fá að vera með.:d
Hafið það gott elskurnar:haha:
Alltaf til í smá djamm og/eða kósíheit ef því er einhvern veginn við komið.
Túrilú!


» 24 hafa sagt sína skoðun

04.11.2008 09:50:51 / Krulla

iðjuþjálfun.is

Sælar,
Ég sá að Erna hafði sett póst inn um nýju heimasíðuna okkar...
Hrefna er í ritstjórn og var hún að spyrja hvort að við mættum fá blaðið ykkar til að setja það inn hjá okkur. Það eru flottar greinar í því og gaman að fá að setja það inn. Við þyftum að fá leyfi frá ykkur og svo fá það á tölvutækuformi.

kveðja Krullan ykkar
sem er allveg sammála Ernu og vill hittast í nóv... og svo eftir prófin mín í jólahitting TAKK! ;)

» 0 hafa sagt sína skoðun

02.11.2008 15:57:17 / Hjödda

Til haaammmingju!!! :)

Hjartanlega til lukku með daginn Helga mín!! :)
Vona að þú njótir hans í botn og látir kallinn stjana vel við þig!!! ;)

         Afmælisknúsar, Hjödda





» 6 hafa sagt sína skoðun

31.10.2008 12:47:16 / Erna

www.idjuthjalfun.is

Halló halló, gamli elskulegi bekkurinn minn.

Við í nýja bekknum er að stofna heimasíðu www.idjuthjalfun.is þar sem allskyns upplýsingar munu koma fram, meðal annars gömul verkefni, bæklingar, matstæki og annað nothæft til að deila með okkur. Okkur fannst svo sorglegt að vera leggja mikla vinnu í hin ýmsu verkefni sem engir sér síðan. Við erum að safna saman verkefnum úr ýmsum námskeiðum ef þið hafið e-ð í huga, t.d. nýjar lendur, verkefni hjá Möggu Sig, heilsufélagslegfræði og annað. Endilega ef ykkur dettur e-ð í hug að senda á gudridurerna@gmail.com.

Annars þakka ég fyrir mig síðan í síðasta Ak. hitting, gaman að hitta ykkur og sérstaklega bumbuna;) Plönum svo annan næsta mánuði.

Kv. Erna nýjasti meðlimur iðjulufsanna


» 2 hafa sagt sína skoðun

23.10.2008 09:59:57 / Helga Þyri

Það er langt síðan Jónína átti afmæli....

...og því fyrir löngu kominn tími til að norðangiðjur hittist. Erna var til í að bjóða húsnæði. Mig langar að heyra í ykkur hér fyrir norðan hvaða kvöld (helst bara í næstu viku) myndi henta. Ég ætti að komast flest kvöld nema þriðjudag. Hvað segið þið?
Hlakka til að hitta ykkur.. knúsar,
Helga Þyri


» 9 hafa sagt sína skoðun

09.10.2008 15:27:30 / Steina

Hún á afmæli í dag hún Jónína......

Til lukku með daginn sæta skvísa ;) bara orðin 24 ára alveg hund gömul neiiiii djók - við eru bara algjörir kjúkklingar ;). Hafðu það rosalega gott í dag.

Kossar og Knús
Kveðja Steina

» 4 hafa sagt sína skoðun

29.09.2008 14:16:55 / Steina

Undur og Stórmerki !!!!

jæja undur og stórmerki að gerast Steina að blogga.
En ótrúlegustu hlutir gerast enn í dag ;).

Ég vil þakka ykkur fyrir frábæra sumarbústaðarferð og er strax farin að telja niður í þá næstu. Það styttist óðum í litlujólin fyrir norðanog það er bara æði, Heiða verður þú ekki örugglega klár með veitingar að vanda?
Það er annars allt gott að frétta af mér, alltaf nóg að gera.
Sunnangiðjur ég verð í Reykjavík 15-17 október er að fara á Haustfund Hlutverkst - samtöku um vinnu og verkþjálfun. Getur einhver tekið það að sér að halda hitting, PLÍS fyrir  mig :o

Þúsund kossar og knústa
Kv. Steina skvís talar frá Eyjum


» 11 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 49
Klukkan
Dagsetning
20. mars 2010
Dagatal
mars - 2010
S M Þ M F F L
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031
FyrriNæsti